slideshow 1 slideshow 2 slideshow 3 slideshow 4 slideshow 5 slideshow 6 slideshow 7 slideshow 8

Fréttir

Æfingar hefjast!

Miðvikudagskvöldið 11 janúar er fyrsta æfing ársins eftir  að söngfólk er búið að liggja á meltunni eftir ofát jóla og áramóta.
Æfingar verða í Tónlistarskólanum á Sauðárkróki og hefjast kl: 20:30

Tónleikar á degi íslenskrar tungu

Sungið verður miðvikudagskvöldið 16 nóvember á degi íslenskrar tungu í samstarfi við börn í 7 bekk Varmahlíðarskóla.
Tónleikarnir verða á Löngumýri og hefjast kl: 20:30
Aðgangur er ókeypis.
Kaffi og með því verður í boði kórsins.

Sumarfrí

Kammerkórsfélagar hafa nú tekið sér sumarfrí eftir aða hafa gert hreint fyrir sínum dyrum, eins og þar stendur, eftir veturinn.
Einhvern tíma í góðu veðri í sumar verður haldinn aðalfundur og næstu skref ákveðin.

Sæluvikutónleikar

Vortónleikar kórsins verða miðvikudaginn 4. maí kl. 20:30 í Sal Frímúrarahússins
Sunnudaginn 1. maí syngur kórinn í Blönduósskirkju, kl. 20:30 
Á efnisskránni eru þjóðlög í nýjum útsetningum og hugljúf lög sem urðu vinsæl um og eftir miðja 20. öld og eru oft sungin í afmælum, fjallaskálum  og á öðrum samkomum.

Æfingadagur í Miklabæjarkirkju

Sunnudaginn 27. mars verður æfingardagur í Miklabæjarkirkju
Mæting kl. 9:30 – 15:30
Raddæfingar
Konur kl.9:30 – 10:25
Karlar kl. 10:30 – 11:25
Samæfing
Kl.11:35 – 12:30
Hádegisverður - Pálínuboð
Kl.12:30- 13:15
Samæfing (rennsli)
Kl.13:30 – 15:30
 

Bassinn fundinn og æfingar ganga smurt

Leitin að bassanum er á enda og nú er aftur komið jafnvægi á raddir í kórnum og hann hljómar sem aldrei fyrr ;-)

Nýtt starfsár að hefjast og það vantar bassa í kórinn

Kórinn hélt 7. og síðustu tónleika ársins í Sal Frímúrarahússins þann 29. des. Æfingar hefjast fljótlega á nýju ári og ef einhvers staðar er bassi á lausu er hann velkominn í hópinn.
Kórfélagar óska öllum farsældar og gleði á nýju ári.

Tónleikar í Frímúrarahúsinu á Sauðárkróki.

Miðvikudaginn 29 des 2010 eru fyrirhugaðir tónleikar Kammerkórsins í frímúrarahúsinu á Sauðárkróki !
Á dagskrá eru aðventu og jólalög .
Tónleikarnir byrja kl. 20:30
Aðgangseyrir er kr 1500
A.T.H. Ekki verður tekið við kortum ..

Sungið fyrir Hallgrím..

 
Í tilefni af útkomu skáldsögunnar Heimanfylgju eftir Steinunni Jóhannesdóttur stendur Forlagið fyrir útgáfuhátíð í félagsheimilinu Ljósheimum kl. 20.30 næstkomandi miðvikudag, 10. nóvember.
Steinunn kynnir atkvæðamestu sögupersónurnar. Skagfirski kammerkórinn syngur lög við ljóð Hallgríms og Sigríður Kristín Jónsdóttir les kafla úr bókinni. Skúli Skúlason, rektor Hólaskóla, stjórnar útgáfuhátíðinni.

Dagur íslenskrar tungu 16.november

Þann 16. nóvember sem er Dagur íslenskrar tungu mun kammerkórinn halda tónleika og bjóða til sín góðum gestum sem eru Sönghópur eldri borgara í Skagafirði og 7. bekkur Varmahlíðarskóla.
Kórarnir munu syngja saman og í sitt hvoru lagi og krakkarnir kynna skáldkonuna Ólínu Jónasdóttur og lesa úr verkum hennar.
 

Theme by Danetsoft and Danang Probo Sayekti inspired by Maksimer