Fréttir
Sumar
Þá er sólin komin hátt á loft og söngfélagar ætla að njóta hennar til haustsins. Gleðilegt sumar.
Breytingar
Vordagskráin okkar hefur breyst.
Við syngjum miðvikudaginn 25. fyrir Oddfello
Við syngjum laugardaginn 28. við opnun Atvinnulífssýningar í Íþróttahúsinu á Sauðárkróki
Við syngjum miðvikudaginn 2. maí við opnun Ljósmyndavefs Sveitarfélagsins Skagafjarðar, Héraðskjalasafns Skagfirðinga og Söguseturs íslenska hestsins
Söngur á vormánuðum
Á þessu vori ætlum við að sleppa eiginlegum vortónleikum.
Við ætlum samt ekki að sleppa því að syngja því við syngjum við afhendingu styrkja hjá Menningarráði Norðurlands vestra sem er í Ljósheimum þann 26. apríl.
Við tökum þátt í Atvinnulífssýningu og Sæluviku með því að syngja í íþróttahúsinu á Sauðárkróki sunnudaginn 29.apríl, við opnun Sæluviku.
Við syngjum svo 2. maí í Fjölbrautaskólanum á Sauðárkróki þegar opnaður verður ljósmyndavefur sem Sveitafélagið Skagafjörður, Sögusetur Íslenska hestsins og Héraðsskjalasafn Skagfirðinga standa að.
Eitthvað syngjum við á fleiri stöðum, m.a. hjá Oddfello og jafnvel víðar. Þannig að þrátt fyrir að við sleppum hinum árlegu vortónleikum þá verður þetta sannkallað söngvor.
Æfingar hefjast!
Miðvikudagskvöldið 11 janúar er fyrsta æfing ársins eftir að söngfólk er búið að liggja á meltunni eftir ofát jóla og áramóta.
Æfingar verða í Tónlistarskólanum á Sauðárkróki og hefjast kl: 20:30
Tónleikar á degi íslenskrar tungu
Sungið verður miðvikudagskvöldið 16 nóvember á degi íslenskrar tungu í samstarfi við börn í 7 bekk Varmahlíðarskóla.
Tónleikarnir verða á Löngumýri og hefjast kl: 20:30
Aðgangur er ókeypis.
Kaffi og með því verður í boði kórsins.
Sumarfrí
Kammerkórsfélagar hafa nú tekið sér sumarfrí eftir aða hafa gert hreint fyrir sínum dyrum, eins og þar stendur, eftir veturinn.
Einhvern tíma í góðu veðri í sumar verður haldinn aðalfundur og næstu skref ákveðin.
Sæluvikutónleikar
Vortónleikar kórsins verða miðvikudaginn 4. maí kl. 20:30 í Sal Frímúrarahússins
Sunnudaginn 1. maí syngur kórinn í Blönduósskirkju, kl. 20:30
Á efnisskránni eru þjóðlög í nýjum útsetningum og hugljúf lög sem urðu vinsæl um og eftir miðja 20. öld og eru oft sungin í afmælum, fjallaskálum og á öðrum samkomum.
Æfingadagur í Miklabæjarkirkju
Sunnudaginn 27. mars verður æfingardagur í Miklabæjarkirkju
Mæting kl. 9:30 – 15:30
Raddæfingar
Konur kl.9:30 – 10:25
Karlar kl. 10:30 – 11:25
Samæfing
Kl.11:35 – 12:30
Hádegisverður - Pálínuboð
Kl.12:30- 13:15
Samæfing (rennsli)
Kl.13:30 – 15:30
Bassinn fundinn og æfingar ganga smurt
Leitin að bassanum er á enda og nú er aftur komið jafnvægi á raddir í kórnum og hann hljómar sem aldrei fyrr ;-)
Nýtt starfsár að hefjast og það vantar bassa í kórinn
Kórinn hélt 7. og síðustu tónleika ársins í Sal Frímúrarahússins þann 29. des. Æfingar hefjast fljótlega á nýju ári og ef einhvers staðar er bassi á lausu er hann velkominn í hópinn.
Kórfélagar óska öllum farsældar og gleði á nýju ári.
